JavaScript is required for this site to function.

Umframeftirspurn á meðal fjárfesta í útboði Dranga


Mynd af kletti á brúnum bakgrunni.

Drangar, nýtt félag á neytendamarkaði, hefur tryggt sér 3 milljarða króna með útboði á nýju hlutafé sem nú er lokið. Útboðið gekk að óskum og var umframeftirspurn á meðal fjárfesta.

Drangar er nýr áskorandi á smásölumarkaði sem tók til starfa fyrr á þessu ári í framhaldi af sameiningu félaga sem starfa á þeim markaði. Á síðasta ári var velta fyrirtækja Dranga um 78 milljarðar króna. Í eigu Dranga er Orkan með 75 þjónustustöðvar um allt land, þvottastöðvar Löðurs og lyfjaverslanir Lyfjavals auk smásöluverslana á yfir 60 stöðum víðsvegar um land undir hatti Samkaupa. Verslanir Samkaupa eru Nettó, Prís, Krambúðin, Kjörbúðin, Iceland, 10 – 11 og netverslunin Heimkaup. Fyrirtæki Dranga reka samtals 160 þjónustustaði um allt land.

Markmið með stofnun Dranga er að efla samkeppni á neytendamarkaði og vera fyrsta val neytenda – hvort sem það er þegar verslað er í matinn, lyf keypt, eða hvar neytendur velja að þvo eða setja orku á bílinn. Stefnt er að því að stækka hóp tryggra viðskiptavina með breiðu vöruvali og þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er ávallt í forgrunni.

Drangar eru sterkur bakhjarl sinna fyrirtækja og leggur áherslu á samlegð, einfaldan rekstur og skilvirkni allra starfseininga.  Með nýju hlutafé verður ráðist í rekstrarumbætur hjá verslunum Samkaupa og fjárfestingar í innviðum félagsins.

Með aukinni samlegð, skýrri sýn og sterkum vörumerkjum er stefnt að auknum vexti fyrirtækjanna og skráningu Dranga á skipulegan markað í Kauphöll á Íslandi fyrir árslok 2027.

Ljósmynd af Auði Daníelsdóttur

Við erum ákaflega ánægð með jákvæð viðbrögð fjárfesta við útboði á nýju hluafé í Dröngum. Við fögnum fjölbreyttum hópi nýrra hluthafa sem deila með okkur framtíðarsýn félagsins á þessum spennandi tímamótum. Aukið hlutafé skapar okkur rými til að ráðast í fjárfestingar og úrbætur í rekstri sem mun leggja grunn að frekari vexti félagsins. Markmið okkar og leiðir liggja fyrir og við höfum mikla trú á okkar öfluga starfsfólki til að takast á við þau fjölmörgu og áhugaverðu verkefni sem bíða okkar á næstu mánuðum til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina.

Auður Daníelsdóttir
Forstjóri Dranga

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir

Auður Daníelsdóttir

Drangar semja við SPAR um notkun vörumerkis á Íslandi

Auður Daníelsdóttir

Auður Daníelsdóttir tekin við starfi forstjóra Samkaupa

Mynd af kletti á fjólubláum bakgrunni.

Nýtt móðurfélag Dranga verður til