JavaScript is required for this site to function.

Auður Daníelsdóttir tekin við starfi forstjóra Samkaupa


Auður Daníelsdóttir

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Orkunnar, hefur jafnframt tekið við starfi forstjóra Samkaupa. Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur hlutverki staðgengils forstjóra síðustu mánuði, mun nú einblína á fyrra starf sem framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni Samkaupa.

Auður tók við starfi forstjóra Dranga í sumar, en Drangar er nýstofnað móðurfélag Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Hún hefur verið forstjóri Orkunnar síðustu þrjú ár og mun áfram sinna því starfi. Þar með leiðir hún umbreytingar í rekstri félaganna og skipan eigna hjá Dröngum.

Ljósmynd af Auði Daníelsdóttur

Samruni Samkaupa og félaga á neytendamarkaði í eigu Dranga hefur gengið vel. Samkaup á öflugan og tryggan viðskiptavinahóp og markmið okkar er að styrkja stöðu fyrirtækisins enn frekar og efla þjónustu við viðskiptavini. Neytendamarkaðurinn er í stöðugri þróun, bæði hvað varðar stafrænar lausnir og aðra þjónustu til viðskiptavina. Við í Samkaupum hlökkum til að takast á við þær áskoranir, en stefna okkar er að veita einfalda og góða þjónustu þar sem upplifun viðskiptavina er í fyrirrúmi.

Auður Daníelsdóttir
Forstjóri Dranga

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir

Auður Daníelsdóttir

Drangar semja við SPAR um notkun vörumerkis á Íslandi

Mynd af kletti á brúnum bakgrunni.

Umframeftirspurn á meðal fjárfesta í útboði Dranga

Mynd af kletti á fjólubláum bakgrunni.

Nýtt móðurfélag Dranga verður til